*Við erum systkinin Gestur Máni, Hafþór Ingi og litla prinsessa*


Um okkur!
Gestur Máni fæddist mánudaginn 28. júní 2004 kl. 11:41 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Hann lét bíða í viku eftir sér. Meðgangan og fæðingin gekk rosalega vel og var hann 13 merkur (3215 gr.) og 50 sm þegar hann kom í heiminn. Hann og mamman fóru heim af sjúkrahúsinu eftir 30 tíma og fengu þjónustu heim af Hrafnhildi ljósmóður.



Hafþór Ingi fæddist miðvikudaginn 9. desember 2009 kl. 11:28 á Landspítalanum í Reykjavík. Hann lét bíða þrjá daga eftir sér. Meðgangan gekk mjög vel þrátt fyrir að mamman hafi lent í einni bílveltu. Fæðingin gekk enn betur í þetta skiptið. Hafþór var 14 merkur (3405 gr.) og 51 sm þegar hann fæddist. Hann og foreldrarnir fóru heim af sjúkrahúsinu eftir 7 tíma og sinnti Margrét ljósmóðir í Mjóddinni heimaþjónustunni.



Mamma okkar heitir Helga Kristín Gestsdóttir og er frá Blönduósi, hún er iðjuþjálfi. Pabbi okkar heitir Erlendur Hrannar Þórsson og er frá Patreksfirði.



Gestur Máni heitir í höfuðið á afa Gesti á Blönduósi og Mána föðurbróður sínum. Hafþór Ingi er skírður í höfuðið á Hafþóri Inga bróður pabba síns sem lést fjögra ára. Amma þeirra á Blönduósi heitir Ragnhildur Helgadóttir og afi Gestur Þórarinsson en hann er dáinn. Afi þeirra á Patreksfirði heitir Þór Árnason og amma þeirra Sigríður Einarsdóttir. Amma Gests Mána (í föðurætt) heitir Hólmfríður Ásgeirsdóttir og afi hans Guðmundur Haraldsson en hann er dáinn.
Við fjölskyldan búum í Reykjavík.




með yndislega afanum mínum!







Annað:



elsku börnin okkar

Áður en þið urðuð til þráðum við ykkur.
Áður en þið komuð í heiminn elskuðu við ykkur.
Áður en þið höfðuð lifað eina stund
hefðum við fúslega dáið fyrir ykkur.
Þið eruð kraftaverk lífsins
Takk fyrir að vera til




Ást mín verður með þér
hvenær sem þú þarfnast hennar.

Ást mín verður með þér
þegar gleðin ber þig ofurliði.

Ást mín verður með þér
þegar erfileikarnir eru að buga þig .

Ást mín verður með þér
þegar þú óttast lífið .

Ást mín verður með þér
í dag og alla daga.

mamma og pabbi




FRÆNDSYSTKINI OG VINIR
Arnrún Ósk og Ásdís Birna
Gabríel, Víkingur, Þórður Pálmi og Agnes Nótt
Sævar Eðvald og Sunna Kristín
Haukur Ingi og Aron
Hallbjörg, Kolbrún, Sóley Sif og Ísak Andri








Þú ert gestur nr. 58791